Lager á hverja stærð
Hver stærð hefur sína lagertölu: peysa í M og sama peysa í L eru tvær tölur, og þær lækka við hverja sölu. Með WooCommerce-vefverslun getur búðin deilt lager með vefnum, svo sama varan seljist ekki tvisvar.
Afgreiðsla, kvittanir eftir kröfum skattsins og lager á hverja stærð, allt á iPad eða Android-spjaldtölvu. Vörurnar eru skráðar beint í kassann og hann heldur utan um lagerinn.
19.900 kr. á mánuði · allt innifalið · 49.000 kr. uppsetning
Vörur í körfu, stærð valin, greitt með korti, kvittun prentuð og dagurinn gerður upp.
Frá fyrstu sölu morgunsins til uppgjörs í lok dags. Kassinn kemur í fimm útlitum og búðin velur það sem passar henni. Hér sýnir hvert þeirra aðra búð.

Allt hér varð til vegna þess að raunveruleg búð þurfti á því að halda.
Hver stærð hefur sína lagertölu: peysa í M og sama peysa í L eru tvær tölur, og þær lækka við hverja sölu. Með WooCommerce-vefverslun getur búðin deilt lager með vefnum, svo sama varan seljist ekki tvisvar.
Kassinn er vistaður í spjaldtölvunni sjálfri. Án nets skráir hann sölur áfram og sendir þær um leið og netið kemur aftur.
Hver kvittun sýnir VSK eftir þrepum, kennitölu og VSK-númer búðarinnar og textann sem skatturinn krefst. Ef varan er gjöf má prenta gjafakvittun án verða.

Endurgreitt á kort, í reiðufé eða sem inneign. Upphaflega salan helst óbreytt; skilin eru skráð sem ný færsla sem vísar í hana.
Sjáðu sölu dagsins hvar sem þú ert, borna saman við sama tíma í síðustu viku. Líka greiðslumáta, vikuna í súluriti, söluhæstu vörurnar og hvað er að klárast á lager.


Líklega áttu flest af þessu nú þegar. Strikamerkjaskanni er óþarfur — leitin og flokkarnir duga.
iPad með iPadOS 15.5 eða nýrra, eða Android-spjaldtölva með Chrome. iPad Pro frá 2017 dugar vel.
á breiddina eða hæðinaVið mælum með Star mC-Print3 eða Epson TM-m30III, tengdum við netið með snúru.
80 mm kvittanirSá sem búðin er þegar með. Spjaldtölvan og prentarinn tengjast honum.
engin tölva, enginn netþjónnHún tengist aftan í prentarann og opnast sjálf þegar greitt er með peningum. Þú getur líka opnað hana úr kassanum.
Nei. Þú notar posann sem þú ert með. Kassinn sýnir upphæðina stórt, þú slærð hana inn á posanum og staðfestir svo í kassanum. Bein tenging við posa frá Teya er næsta skref.
19.900 kr. á mánuði, allt innifalið: kassinn, kvittanir eftir kröfum skattsins, lager á hverja stærð, yfirlitið í símanum og tenging við WooCommerce-vefverslun ef búðin er með hana. 49.000 kr. uppsetning, einu sinni.
Allt án vsk. Engin binding — þú getur hætt hvenær sem er og tekið gögnin þín með þér. Tenging við posa bætist við þegar hún er komin.
Fyrstu búðirnar fá helmingsafslátt í tólf mánuði gegn því að segja okkur hvað má betur fara.
Já. Hver sala er innsigluð og tengd þeirri á undan, svo breyting eftir á sést strax; skil og leiðréttingar eru nýjar færslur og ekkert er skrifað yfir. Afrit fer sjálfkrafa í skýið þegar netið er uppi, og nöfn viðskiptavina fara aldrei úr spjaldtölvunni.
Þú heldur áfram að selja. Kassinn opnast án nets með öllum vörum og myndum og sendir söluna þegar netið kemur aftur.
Nei. Kassinn virkar einn og sér: vörurnar eru skráðar beint í hann og hann heldur utan um lagerinn. Ertu með WooCommerce-vefverslun getur hann sótt vörurnar þaðan, og þú velur hvort búðin og vefurinn deili lager eða ekki. Tenging við Shopify er ekki komin.
Já. Kassinn heldur rafræna dagbók og teljara yfir sölu dagsins og alla sölu frá upphafi, prentar dagsuppgjör (Z-skýrslu) og kvittanir með VSK eftir þrepum, og tekur afrit í lok hvers dags.
Kassinn býr til mánaðaryfirlit fyrir bókarann: hvern dag og hverja kvittun, með VSK eftir þrepum og greiðslumátum, og gjafabréf aðskilin frá sölu. Skráin opnast í Excel og flestum bókhaldskerfum. Bein tenging við bókhaldskerfi er ekki komin.
Nei. Þú finnur vöruna með því að snerta flokkinn og svo vöruna, eða slá nafnið eða SKU í leitina. Eigirðu skanna virkar hann samt: hann skrifar í sama leitarreit og setur vöruna beint í körfuna.
Ekki ef lagertölurnar á vefnum eru réttar; kassinn byrjar á þeim. Annars telurðu í kassanum, eina vöru í einu, og nýju tölurnar fara á vefinn.
Sendu okkur línu um búðina þína og við svörum með því sem á við: hvað kassinn gerir fyrir hana, hvað þarf til og hvenær hægt væri að byrja. Þú getur líka fengið að prófa hann sjálf.
Við svörum sama dag ef við erum ekki í uppsetningu.