Lageraðstoð sem fylgir kassanum.
Hún svarar spurningum um lagerinn á mannamáli og les inn sendingar af mynd, svo þú hafir meiri tíma í búðinni. Þú samþykkir allt sem fer inn í kassann.
Leiðinlegu verkin á lagernum.
- 01
Svarar spurningum
Spurðu á venjulegri íslensku. Svarið kemur úr lagernum eins og hann er núna, með tölum.
„Hvað þarf ég að panta fyrir helgina?“ - 02
Les inn sendingar
Taktu mynd af fylgiseðli eða reikningi. Hún parar línurnar við vörurnar þínar og leggur saman, svo misræmi sést strax.
47 stk í 9 línum · seðillinn segir 47 ✓ - 03
Stingur upp á nýjum vörum
Línur sem eru ekki til í kassanum verða að tillögum að nýjum vörum. Söluverð giskar hún aldrei á, það setur þú.
Ennisband – ull · söluverð vantar
Hún undirbýr. Þú ákveður.
Ekkert fer inn í kassann fyrr en þú ýtir á „Senda á kassann“, og í dagbókinni stendur nafnið þitt, ekki „gervigreindin“.
- Skrifar ekkert í kassann án þess að þú samþykkir
- Pantar ekki og sendir engan póst
- Breytir ekki verði
- Sér engin nöfn viðskiptavina eða starfsfólks
- Geymir ekki myndirnar af reikningunum. Þeim er hent eftir lestur
Það sem búðir spyrja um
Kostar hún aukalega?
Nei. Hún fylgir kassanum og er innifalin í 16.990 kr. á mánuði án vsk. Engin binding.
Hvernig veit ég að allt sé rétt?
Þú sérð hverja línu við hliðina á því sem stendur á seðlinum og hakar við. Lína sem hún er ekki viss um er merkt, og summan er borin saman við seðilinn. Ekkert fer inn fyrr en þú samþykkir.
Hvaða gögn sér hún?
Vörurnar, verðin, innkaupsverðin og söluna. Ekki hver keypti, og ekkert um starfsfólkið.
Hvaða gervigreind er þetta?
Claude frá Anthropic. Hún les aðeins það sem kassinn sendir henni fyrir hverja spurningu.
Er hún komin?
Já. Hún fylgir kassanum og er í prófun í íslenskri búð núna. Viltu vera með þeim fyrstu? Sendu okkur línu.
Kassinn og lageraðstoðin.
16.990 kr. á mánuði án vsk · engin binding · fyrsti mánuðurinn frír