Námskeið · haldið á ykkar vinnustað
Gervigreind í daglegu starfi.
Verklegt námskeið í Claude fyrir starfsfólk lítilla fyrirtækja. Við komum til ykkar.
Verð fyrir hópinn
590.000 kr.
fyrir allt að 12 manns · heildarverð
Fast verð fyrir hópinn, hvort sem þið eruð 4 eða 12. Starfsmenntasjóðir stéttarfélaga geta endurgreitt fyrirtækinu allt að 90%. Sjá hvernig.
- Lengd6 klst. í tveimur hlutum
- Tímivenjulega tveir morgnar, kl. 9–12
- Hópurhámark 12 manns
- Staðurá ykkar vinnustað
Þið vinnið á eigin tölvu og farið heim með aðferðir sem nýtast strax í vinnunni. Engin forritunarkunnátta þarf. Öll fyrirtæki geta pantað námskeiðið.
Þið leggið til herbergi með skjá eða skjávarpa og þráðlausu neti. Við komum með allt annað.
Opin námskeið fyrir einstaklinga, með föstum dagsetningum: 59.900 kr. á mann. Auglýst fljótlega.
Markmið
Að loknu námskeiði getur þátttakandi:
- notað Claude af öryggi í eigin starfi: vitað hvað má setja inn, hvað ekki, og hvernig samtölin eru varin
- skrifað skýr fyrirmæli sem skila nothæfri niðurstöðu
- látið Claude lesa skjöl, PDF og myndir og draga upplýsingar út í töflu
- skrifað og lagað texta og tölvupósta á íslensku og ensku
- sett upp verkefni með föstum leiðbeiningum sem vinnur sama verkið aftur og aftur
- metið hvaða verk henta gervigreind og sannreynt niðurstöðurnar
Efnisyfirlit
Tveir hlutar, sama efni fyrir alla.
Hver hluti er stutt sýning og síðan æfing á eigin tölvu. Æfingarnar eru úr venjulegum skrifstofu- og verslunarstörfum; þátttakendur mega nota sín eigin dæmi.
-
Fyrri hluti · 3 klst.
Grunnurinn
- Hvað gervigreind gerir vel, hvað hún gerir illa og hvar hún skáldar
- Öryggi: persónuupplýsingar, trúnaður og stillingin sem kemur í veg fyrir að samtölin séu notuð til að þjálfa gervigreindina
- Fyrirmæli sem virka: hlutverk, samhengi, dæmi og snið
- Skjöl, PDF og myndir: upplýsingar dregnar út í töflu
- Tölvupóstar og texti á íslensku: skrifa, stytta, laga tón
-
Seinni hluti · 3 klst.
Verk sem endurtaka sig
- Verkefni (Projects) með föstum leiðbeiningum og skjölum
- Excel og gögn: samantektir, flokkun og skýrslur
- Að sannreyna: hvernig þú veist að niðurstaðan er rétt
- Að finna verkin í eigin starfi sem borga sig mest
- Sjálfvirkni: hvenær borgar sig að láta verk vinnast sjálfkrafa
Leiðbeinandi
Stefán Örn Guðmundsson
Stefán stofnaði grind kerfi, sem smíðar kerfi með gervigreind fyrir íslensk fyrirtæki. Hann hefur smíðað kassakerfi sem er í notkun í íslenskri verslun, og kennir það sem hefur virkað í raunverulegum rekstri.
Endurgreiðsla
Fyrirtækið getur fengið allt að 90% til baka.
Starfsmenntasjóðir stéttarfélaga endurgreiða fyrirtækjum fræðslu fyrir sína félagsmenn. Hlutfallið fer eftir stéttarfélagi starfsmannsins.
- Við gefum út reikning á kennitölu fyrirtækisins, eingöngu fyrir námskeiðið. Fyrirtækið greiðir hann með millifærslu af bankareikningi fyrirtækisins.
- Eftir námskeiðið, og innan 12 mánaða, sækir fyrirtækið um á attin.is. Með umsókninni fylgja reikningurinn, greiðslukvittun, listi yfir þátttakendur (nafn, kennitala og stéttarfélag) og slóð á þessa síðu.
- Verslunar- og skrifstofufólk í VR eða LÍV: allt að 90%. Starfsfólk í Eflingu og öðrum félögum Starfsgreinasambandsins: allt að 90%. Iðnaðarmenn (sjóðir Iðunnar og Rafmenntar): um 65%.
- Eigendur teljast ekki með og virðisaukaskattur er ekki endurgreiddur. Fyrirtækið þarf að hafa greitt iðgjöld í 12 mánuði. Hver sjóður hefur sínar reglur.
- Allir þátttakendur fá staðfestingu á þátttöku. Greiðir einstaklingur opið námskeið sjálfur getur hann sótt um einstaklingsstyrk hjá sínu stéttarfélagi.
Spurningar
Áður en þið pantið
Fyrir hverja er námskeiðið?
Starfsfólk og stjórnendur í litlum og meðalstórum fyrirtækjum, til dæmis í verslun, skrifstofustörfum og ferðaþjónustu, sem vilja nota gervigreind í eigin vinnu. Ekki forritara.
Hvað þarf ég að hafa með mér?
Fartölvu og aðgang að Claude. Ókeypis aðgangur dugar. Greidd áskrift (Claude Pro, 20 dollarar á mánuði auk vsk) gefur meiri notkun og fleiri möguleika, en er ekki skilyrði. Við sendum leiðbeiningar um að stofna aðganginn viku fyrir námskeiðið.
Þarf ég að kunna eitthvað fyrir fram?
Nei. Ef þú notar tölvupóst og Excel í vinnunni getur þú tekið þátt.
Ég er ein eða einn. Get ég komið?
Opin námskeið með föstum dagsetningum, 59.900 kr. á mann, verða auglýst hér fljótlega. Sendu okkur línu og við látum þig vita þegar fyrsta dagsetningin liggur fyrir.
Hvað ef við viljum að verkið vinnist sjálfkrafa?
Það er næsta skref og ekki hluti af námskeiðinu: við smíðum forrit sem sér um handavinnuna fyrir ykkur. Sjá Fyrir fyrirtæki.
Hvað ef við þurfum að fresta?
Látið vita minnst viku fyrir og við finnum nýjan tíma, án kostnaðar.
Gervigreind í daglegu starfi.
Á ykkar vinnustað · 6 klst. · allt að 12 manns · allt að 90% endurgreitt